clxix

mánudagur, 1. mars
já, ég bið yður auðmjúklega afsökunar. ég veit vel að ég hef ekki staðið mig upp á síðkastið. mér finnst það mjög leiðinlegt en þannig er það víst bara stundum. nei, ég get ekki einu sinni brugðið fyrir mig þeirri afsökun sem ég hef allra oftast gert hingað til: ég á engar myndir á reiðum höndum. þvert á móti, ég á alltof mikið af myndum í augnablikinu! sannleikurinn er bara sá að ég var eiginlega búinn gleyma þessu litla myndabloggi mínu. aum afsökun, já, en engu að síður sú sannasta sem ég get gefið. allavega, þar sem ég hef enga sérstaka trú á refsingum en þess meiri trú á betrun, þá vil ég sýna iðrun mína í verki: til þess að bæta upp fyrir þögn síðustu fimm vikna, þá færi ég nú fram, fullur auðmýktar og æðruleysis, jafnmargar myndir. já, myndirnar eru allar frá íslandi eins og það leit út fyrir mér síðastliðið sumar. um þær er ekki mikið meira að segja en það.









skoðanir:

1.3.10, Anonymous Anonymous sagði:

Ég held að þú sért snillingur í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur:)
Kveðja HUGGA

 
8.3.10, Anonymous Anonymous sagði:

Vá Andri, ég er eiginlega bara orðlaus yfir þessum myndum. Best að enda þetta innleg bara á öðru Vá-i.

Auður

 

segðu þína skoðun

til baka