cxxii
fimmtudagur. 6. nóvembereftir nokkra daga á norðurlöndum, þá er ég kominn til skotlands enn á ný. ég veit vel að myndir vikunnar hafa verið ögn strjálar upp á síðkastið; slíkar eru víst afleiðingar stöðugra ferðalaga. en hvað um það, fyrst ég er staddur í skotlandi einmitt núna gat ég ekki stillt mig um að lauma einni ómynd frá mér. og til þess að bæta gráu ofan á svart, þá verð ég að viðurkenna að ég veit ekki einu sinni almennilega hvert myndefnið er að þessu sinni.

annars verð ég í útlöndum aftur í væstu viku, þannig að þessi mynd fær að trjóna hér efst um sinn.
skoðanir:
segðu þína skoðun
til baka