xciii

þriðjudagur, 11. desember
hananú, þá er víst komið að síðustu myndinni að sinni. ástæða þess er afar einföld: næstkomandi sunnudag held ég enn á ný á vit ævintýranna til íslands. ég vona innilega að einhverjum kunni að finnast slíkt tilhlökkunarvert. en þrátt fyrir að ég gangi að slíku sem vissu, þá þykist ég samt vita að fáum finnist eins ofboðslega mikið til þess koma og mér: ég hef aldrei hlakkað jafn hræðilega til þess að koma heim og einmitt núna.

en hvað um það, mynd vikunnar er áframhald af ættjarðaróð undanfarna vikna. myndin að þessu sinni er einnig úr þjóðgarðinum við skaftafell. þessi mynd er tekin af skaftafellsheiði til austurs í þeirri birtu sem mér finnst hvað íslenskust. á myndinni má sjá skaftafellsjökul og svínafellsjökul. þeirra á milli er hafrafell með sína alræmdu efrimenn, fremrimenn og illukletta. á bak við svinafellsjökul má sjá svínafellsheiði, þar sem skarðatindur gnæfir hæðst og skyggir ásamt stöku skýji á hvannadalskamb. ögn ofar í skýjunum leynist svo dyrhamar og hvannadalshnjúkur. en eins og allir vita, þá er umræddur hvannadalshnjúkur hæðsta fjall hins íslenska heimsveldis.

allavega, þetta er kveðjustund að sinni. svona að lokum vil ég því óska öllum gleðilegra jóla og alls hins besta. takk fyrir allt.

skoðanir:

11.12.07, Anonymous Anonymous sagði:

Góða ferð Andri minn! Vona að þú kíkir á Djúpavog sem fyrst :)
Kveðja Unnur
P.s. Fallegar myndirnar þínar! Algjört augnakonfekt ;)

 
15.12.07, Anonymous Anonymous sagði:

Mér þykir það mikið tilhlökkunarefni að þú sért á heimleið, sérstaklega því þú ert væntanlegur á Djúpavog:)
Sjáumst milli jóla og nýárs!!
Kveðja Hugrún

 
11.1.08, Anonymous Anonymous sagði:

Jæja nú bíður maður bara spenntur eftir næstu mynd úr Íslandshringnum :) Mátt ekki gleyma að halda áfram með myndahringinn af litla Íslandi þó að þú sért sjálfur að fara hálfan hring um hnöttinn :)
Takk fyrir síðast! Bara tómlegt þegar þú varst farinn. Pálmi farinn að róa frá Grindavík og Unnza bara ein í kotinu með börnin tvö :) Gangi þér allt í haginn.
Kveðja Unnur

 

segðu þína skoðun

til baka